wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘umræðan’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Hef enga trú á framtíðinni

Rúmu ári eftir að allt hrundi í okkar samfélagi, má enn finna einstaklinga sem þykja “pabbar” þeirra vera sterkari en “pabbar” allra hinna. Þessi árátta er ekki bundin við einn flokk, eða eina hugsjón, heldur virðist þetta vera bundið í trúarkerfi hvers og eins okkar, burt séð frá staðreyndum og “sannleikanum”.

Lesa restina af þessari færslu →

05

12 2009

Til framtíðar

Engin veit framtíð sína, hvort sem það eru spámenn fortíðarinnar eða sjáendur nútímans. Nostradamus má túlka á hvern þann veg, sem þjónar tilgangi þess er túlkar hann – rétt eins og hægt er að túlka spádóma “Jóhannesar” í Opinberunarbókinni. Sjáendur fortíðarinnar eru engu betri í því að sjá framtíðina, frekar en við sjálf – hvert og eitt okkar.

Lesa restina af þessari færslu →

14

11 2009

Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Jafnframt vill forseti upplýsa að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefur verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða er um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram áður en skýrslan verður gerð opinber. Því má vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

[Leturbreytingar - ÓS]

af Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar.

Finnst mér einum vera eitthvað gruggugt hér í gangi?

14

10 2009

Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum


Nokkur umræða hefur orðið um svokallaða orkudrykki í ljósi þess að nýjar tegundir sem innihalda mikið koffín hafa nú numið land. Ástæðan fyrir þessu er breyting á reglum en nú eru ekki lengur nein takmörk á magni viðbætts koffíns í drykkjum eins og áður var.

af Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum.

Orkudrykkjanotkun hefur snaraukist og er svo komið að við höfum fleiri einstaklinga sem nota drykkina (koffein, ginseng og fleiri “orkuaukandi” efni) til að halda sér gangandi megnið úr deginum. Hafa þessir drykkir áhrif á tauga- og æðakerfi ásamt því að hjartað fær að vinna hressilega, aukinn blóðþrýsingur er einnig fylgifiskur orkudrykkja. Ef við skoðum mann sem drekkur nokkra svona drykki á dag í einhvern tíma, hvernig ætli hjarta- og æðakerfi hans sé orðið eftir mikla notkun? Hvenær lendir þessi einstaklingur á sjúkrahúsi vegna orkudrykkjanotkunnar? Engir skattar eru eyrnamerktir til heilbrigðismála svo vitað sé af þessum orkudrykkjum. Tel ég að þessir drykkir, ásamt tóbaksnotkun, eigi eftir að verða heilbrigðisvandamál þessarar aldar, því þrátt fyrir að þetta séu lögleg fíkniefni er langur vegur frá að þau séu skaðlaus.

úr Vímuefnanotkun á Ísland (ÓS – 2003)

14

10 2009

Halldór: Skuldastaða heimilianna

Hefur þetta ekki verið svona frá stofnun lýðveldisins? Ég er ekki gamall en ég held að ekkert lýsi baráttu okkar samfélags, frá miðri síðustu öld til dagsins í dag, meira en þessi mynd Halldórs hjá Morgunblaðinu:

Skuldastaða heimilanna - Halldór 2009

Skuldastaða heimilanna - Halldór 2009

28

09 2009

Er bólusetning örugg? – magnuss.blog.is

»Varað var við svínaflensu faraldri 1976.  Bólusetningarherferð var sett í gang í USA, sumir vilja meina að svína flensan gangi út á bólusetningarherferð og bólusetningu beri að varast.«

via Er bólusetning örugg? – magnuss.blog.is.

Nei; bólusettning er EKKI örugg! Reynslan sýnir, að bólusettningar á “flensu” hafa frekar drepið einstaklinga (Google: Donald Rumsfeld) en að hjálpa þeim. Því ætti þessi “plat”-flensa að vera öðruvísi? “Mótefnið” hefur ekki einu sinni verið prófað á fólki, áður en það var sent út um allar jarðir…

Og hverjir eru það, sem helst eru að deyja vegna þessarar flensu? “19-24ra ára gaml[ir]” einstaklingar, eru þeir sem falla vegna þessarar flensu? HALLÓ!?!?? Eru það ekki einstaklingar, sem eiga að hafa sem sterkasta ónæmiskerfið??? URG!

10

08 2009

www.jonas.is – Hættið að dekstra hrunmenn

»Tilgangslaust er að reyna að fá stjórnarandstöðuna til að samþykkja IceSave með fyrirvörum. Hún vill einfaldlega ekki IceSave. Enda var hún í stjórn, er IceSave hengingarólin var brugðin á sínum tíma. Sjálfstæðið og Framsókn eru núna ábyrgðarlausir flokkar, sem afneita fortíð sinni. Tímabært er að hætta að dekstra liðið, sem olli hruni Íslands. Stjórnarsinnar verða að koma sér saman um fáa fyrirvara og skýringar, sem jafngilda ekki falli samningsins. Mest reynir á Ögmund Jónasson að koma á sátt stjórnar og uppreisnarþingmanna Vinstri grænna. Verra er að fá hrunmenn Sjálfstæðis og Framsóknar til valda.«

via www.jonas.is.

Áróður getur verkað á tvo vegu…

10

08 2009

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”

“Ég hef ekki verið í neinum samskiptum við þetta ágæta fólk eftir þennan minnisverða dag, þegar þau tóku upp á því að ganga á bak orða sinna. Ég sé ekki ástæðu til að skiptast á orðum við fólk sem ekki er mark takandi á,”

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”.

Ætli hann gangi til liðs við Framsóknarflokkinn? Það hafa margir haldið því fram gegnum tíðina. Mér er hlýtt til Þráins – en ég skil ekki hans afstöðu í þessum málum.

06

08 2009

DV.is – Blogg – Hefnd Björgólfs

Svarthöfði er alltaf beittur:

“Ef Landsbankinn hefði verið loftfar hefði orðið Hindenburg-slys hér á landi. Ef hann hefði verið skip hefði hann farið sömu leið og Titanic. Eða Hafskip. Sem geimferja væri hann Challenger og sem kjarnorkuver Chernobyl. Einhvern veginn tókst Björgólfi, þvert gegn öllum líkum, að hámarka tjónið sem hann gat valdið. Þegar bankinn hans stefndi í þrot gaf hann í, með því að soga Icesave-peninga úr vösum Breta og Hollendinga, áður en hann skall til jarðar. Þetta olli því að heil þjóð þurfti í nauðarsamninga sem standa í vegi fyrir endurreisn efnahagslífsins.”

DV.is – Blogg – Hefnd Björgólfs.

06

08 2009

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009



Switch to our mobile site