wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘stjórnvöld’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Í skugga skaðræðis

Nú eru nærri tvö ár liðin frá hruni íslensks samfélags, hvort sem er talað um fjármálakerfið, stjórnmálakerfið eða embættismannakerfið. Samfélagið hrundi með brambolti; uppi stendur þjóð sem veit ekkert í hvorn fótinn eigi að stíga. Ekkert hefur breyst, nema hvað ágangur kerfisins á grunnstoðirnar er í allt öðrum takti en farið var af stað með; spillingin lifir góðu lífi – fjármunirnir stjórna enn lýðveldinu Íslandi.

Að utan

Það hefur verið forvitnileg lífsreynsla að fylgjast með slíkum atburðum úr fjarlægð, sem hafa hrist upp í samfélagi því sem ég ólst upp í og hafði trú á til að byrja með. “Guð blessi Ísland”, búsáhaldarbyltingin – átökin við Alþingi; borgarafundirnir og stjórnarskiftin – allt var þetta eins og frekar súrealísk upplifun á því sem ég hafði svo sem búist við. Það kókópuffs-hagkerfi sem var á Íslandi gekk ekki upp til lengri tíma; það borgar sig ekki að borga lán með lánum.

Samt gat ég ekki annað en fagnað því að fólk væri farið að standa saman, berjast fyrir réttindum hvers annars – berjast gegn óréttlætinu sem hefur tröllriðið samfélagið í áratugi, og gerir hugsanlega enn. Það fyllti mitt hrædda hjarta von um að nú myndi samfélag okkar breytast til hins betra. Sú von lifði ekki lengi – því miður.

Bræður eru að berjast

Íslendingar virðast alltaf þurfa að tilheyra sigurliðinu, hvort sem það er í íþróttum eða stjórnmálum. Stjórnmálin á Íslandi hafa verið lík trúarbrögðum, frekar en að vera vettvangur skoðanaskipta og sköpunar nýrra hugmynda. Jafnvel þegar stuðningur við ákveðin flokk er algjörlega á skjön við hagsmuni þess er velur, þá skal samt halda í trúna, hvað sem á gengur. Áróðursmaskínurnar látnar vinna yfirvinnu til að halda uppi þeim blekkingum sem nota má til að svæfa lýðinn. Þetta er hálfgerð bilun, þetta samfélag.

Nú hefur enn tekist að kljúfa samtakamátt þjóðarinnar, með Icesave og ESB, fiskveiðum, gengisdómi Hæstaréttar og skattahækkunum. Sumir eru á móti, aðrir með – og stundum sammála og stundum ekki. Þjóðin er svo margklofin gegn sjálfri sér, að næstum ómögulegt er fyrir hana að standa saman aftur og krefjast réttlætis. Þessu hefur stjórnmálaelítan komið svo fyrir, til að minnka möguleikann á því að þurfa að víkja, efna til kosninga – og svo hún geti komið sér og sínum fyrir, rétt eins og hinir gerðu, þegar þeir réðu. Á meðan þjóðin rífst, eru meðlimir elítunnar hinir bestu mátar (nema kannski út á við) því þeir halda öllu því sem þeir höfðu og geta ráðstafað eignum lýðsins eins og þeim hentar. Eða næstum því

Blogg og blaðurskjóður

Annars hefur ýmislegt breyst, séð með augum Tunglsins. Menn hafa verið flæmdir úr embætti með blogginu einu – og nokkrum blaðagreinum, auðvitað. Ráðherrar, sumir, eru hræddir við umræðuna, því hún kemur í veg fyrir að þeir geti hagað sér eins og þeim einum hentar. Sumir þegja, láta ekki sjá sig – eru hálfgerðir skuggaráðherrar velferðastjórnarinnar. Orkusölugjöf til skúffufyrirtækja endurskoðuð – því fólk er loks að tjá sig. En betur má ef duga skal.

Blogg og Fésbók og allt hitt er gott og blessað, eins langt og það nær. Mæting á mótmæli (það vantar betra orð yfir þetta, því “demonstration” er eitthvað sem hefur mun þyngri merkingu en orðið mótmæli – en að því löngu síðar) er frekar slöpp, miðað við fjölda þeirra sem ættu að vera uppi með kröfuspjöld. Flestir ærast á vefnum – en fáir fara í skóna og arka af stað.

Engu verður breytt á blogginu. Það má kannski byrja þar – en á endanum þarf fólk af holdi og blóði til að safnast saman og knýja á þær breytingar sem þarf svo hægt sé að byggja upp betra samfélag. Það þarf ekki mikið til – aðeins samtakamátt okkar allra, sem nú þegar er unnið í að splundra og komið langt á veg.

Framtíð frjálshyggju

“Frjálshyggjan er dauð” hefur verið fullyrt, en svo er ekki. Meira að segja lifir hin svokallaða “nýfrjálshyggja” enn góðu lífi, í mörgum þeim sem enn fá að spila í bankaleiknum þrátt fyrir að hafa klúðrað síðasta spili svo herfilega. Samfélag verður ekki byggt upp með frjálshyggjunni einni saman – né heldur með ríkisvæðingum og upptöku eigna í stórum stíl. Hvor kenning um sig hefur sannarlega sýnt galla sína – nú þarf að leggja höfuð í bleyti og finna meðalveg, sem meirihlutinn getur sætt sig við.

Frelsi til tjáningar, hvort sem hún er neikvæð eða jákvæð, má síst taka af. Við sjáum til dæmis að forseti Bandaríkjanna leggur til frumvarp um að geta slökkt á Netinu í 30 daga, án þess að þurfa að réttlæta það á neinn máta. Þetta er ekkert annað en bein aðför að tjáningafrelsi milljóna manna, bæði innan og utan Bandaríkjanna. Þegar er byrjað að herja á tjáningarfrelsi á Íslandi, með undangengnum dómum gegn blaðamönnum. Ef við höfum ekki frelsi til að láta andstöðu okkar í ljós – eða frelsi til að tjá okkar skoðanir, þá höfum við ekki lengur möguleika til að koma frá spilltum stjórnmálamönnum, heldur festumst enn frekar í neti þrældóms, því neti sem í raun var fyrir löngu kastað yfir þjóðina. Frjálshyggja er nauðsynleg, en henni þarf að setja ákveðnar skorður – því óheft, er hún samfélaginu hættuleg og mjög skaðleg.

Hvernig samfélag?

Getur íslensk þjóð einhvern tímann komið sér saman um hvernig samfélag við viljum búa í? Er það möguleiki, miðað við sundurlyndi hennar, sem virðist svo samgróið að nánast útilokað er að laga það? Á íslenskt samfélag einhverja von um að skána, breytast og verða það lýðræðissamfélag sem það hefur alla burði til að vera, en hefur svo sannarlega sofið á verðinum og látið reka á reiðanum? Það er vonandi. En hefur það sýnt sig, síðustu tvö ár frá hruni að svo geti verið? Hvað hefur breyst í okkar samfélagi svo megi finna þessa von? Hafa stjórnmálin breyst? Hefur harka Valdstjórnarinnar gagnvart borgurunum breyst? Höfum við fengið stjórnlagaþing, nýja Stjórnarskrá? Hefur einhverjum verið refsað fyrir þá glæpi sem þeir frömdu gegn þjóðinni? Hefur eitthvað breyst?

Hvernig samfélag viljum við? Hvað þarf til að fólk standi saman og komi sér út úr þessari vitleysu? Því við höfum valdið – ekki Valdstjórnin. Hún heldur það bara, og vill að við trúum því. Þess vegna kallar hún sig Valdstjórnina. En þau þiggja völd sín frá okkur. Því megum við aldrei gleyma. Viljum við búa í samfélagi þar sem kjörnir fulltrúar eru Valdstjórnin – og þá við væntanlega “þegnarnir”? Vilt þú búa í slíku samfélagi?

Orð eru sterk – og það er búið að breyta mörgu í okkar samfélagi, með orðalaginu einu saman. Þetta hefur gerst hægt og rólega gegnum árin, en skiptir máli þegar allt er tekið saman. Viljum við búa í samfélagi þar sem fulltrúar fólksins koma aftan að samfélaginu með svona brellum? Þær eiga sér enn stað – á okkar vakt. Tökum valdið til baka og byggjum upp betra samfélag. Það erum VIÐ sem eru VALDhafar þessa lands. Ef við stöndum saman, getum við þess vegna lagt af núverandi Alþingi og sett nýtt – með nýrri Stjórnarskrá ef því er fyrir að fara.

Við höfum valdið – okkar er valdið!

Greinin birtist fyrst á Gagnauga.is

08

08 2010

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Hef enga trú á framtíðinni

Rúmu ári eftir að allt hrundi í okkar samfélagi, má enn finna einstaklinga sem þykja “pabbar” þeirra vera sterkari en “pabbar” allra hinna. Þessi árátta er ekki bundin við einn flokk, eða eina hugsjón, heldur virðist þetta vera bundið í trúarkerfi hvers og eins okkar, burt séð frá staðreyndum og “sannleikanum”.

Lesa restina af þessari færslu →

05

12 2009

Til framtíðar

Engin veit framtíð sína, hvort sem það eru spámenn fortíðarinnar eða sjáendur nútímans. Nostradamus má túlka á hvern þann veg, sem þjónar tilgangi þess er túlkar hann – rétt eins og hægt er að túlka spádóma “Jóhannesar” í Opinberunarbókinni. Sjáendur fortíðarinnar eru engu betri í því að sjá framtíðina, frekar en við sjálf – hvert og eitt okkar.

Lesa restina af þessari færslu →

14

11 2009

Vísir – Sendiráðsþjófurinn [hvers dóttir?] þjáist af alvarlegri spilafíkn

Utanríkisráðuneytið / Mynd: GVA/Vísir.is

Grunur leikur á að konan hafi dregið sér rúmlega fimmtíu milljónir króna en þess má geta að fjárframlög til sendiráðsins í Vín voru 57 milljónir í fyrra. Hún mun hafa haft aðgang að reikningum sendiráðsins en einnig utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt heimildum fréttastofu glímir konan við alvarlega spilafíkn og virðast peningar ráðuneytisins hafa farið í veðmálsleiki á netinu.

af Vísir – Sendiráðsþjófurinn þjáist af alvarlegri spilafíkn.

Ég hef bara eina spurningu: Hvers dóttir er hún?

15

10 2009

Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Jafnframt vill forseti upplýsa að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefur verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða er um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram áður en skýrslan verður gerð opinber. Því má vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

[Leturbreytingar - ÓS]

af Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar.

Finnst mér einum vera eitthvað gruggugt hér í gangi?

14

10 2009

Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum


Nokkur umræða hefur orðið um svokallaða orkudrykki í ljósi þess að nýjar tegundir sem innihalda mikið koffín hafa nú numið land. Ástæðan fyrir þessu er breyting á reglum en nú eru ekki lengur nein takmörk á magni viðbætts koffíns í drykkjum eins og áður var.

af Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum.

Orkudrykkjanotkun hefur snaraukist og er svo komið að við höfum fleiri einstaklinga sem nota drykkina (koffein, ginseng og fleiri “orkuaukandi” efni) til að halda sér gangandi megnið úr deginum. Hafa þessir drykkir áhrif á tauga- og æðakerfi ásamt því að hjartað fær að vinna hressilega, aukinn blóðþrýsingur er einnig fylgifiskur orkudrykkja. Ef við skoðum mann sem drekkur nokkra svona drykki á dag í einhvern tíma, hvernig ætli hjarta- og æðakerfi hans sé orðið eftir mikla notkun? Hvenær lendir þessi einstaklingur á sjúkrahúsi vegna orkudrykkjanotkunnar? Engir skattar eru eyrnamerktir til heilbrigðismála svo vitað sé af þessum orkudrykkjum. Tel ég að þessir drykkir, ásamt tóbaksnotkun, eigi eftir að verða heilbrigðisvandamál þessarar aldar, því þrátt fyrir að þetta séu lögleg fíkniefni er langur vegur frá að þau séu skaðlaus.

úr Vímuefnanotkun á Ísland (ÓS – 2003)

14

10 2009

Lýðræðisrúinn ráðherra?

Var hann ekki kosinn í almennum þingkosningum? Býr hann ekki í sama samfélagi og ég, þar sem samkeppni er ekki litin hornauga, heldur samþykkt sem rekstrargrunnur – þótt svo farið hafi lítið fyrir slíkri “samkeppni” síðustu áratugina? Á hvaða öld er Jón Bjarnason “ráðherra” staddur? Er sú öld ekki liðin – fyrir löngu? Það er sem mig minnir það, en undanfarið hefur mér ég frekar vera staddur í samfélagi á sýru, frekar en í alvöru samfélagi fólks sem stefna sínu lífi á framtíðina…

Vísir.is:

visir-2009-10-26-radherra_hvatti_til_brota_a_samkeppnislogum

Smellið til að stækka

Lög nr. 44/2005 – 11.gr:
Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.
Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:
a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.
Lög nr. 44/2005 – 12.gr:
Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.
Lög nr. 44/2005 – 33.gr:
Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2005044.html

Lög nr. 44/2005 – 11.gr:

Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.

Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:

  • a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
  • b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
  • c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
  • d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.

Lög nr. 44/2005 – 12.gr:

Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.

Lög nr. 44/2005 – 33.gr:

Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.

Silfur Egils:

Smellið til að stækka - Mæli með lestri athugasemda...

Smellið til að stækka - Mæli með lestri athugasemda...

RÚV.is:

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum:

Vísir.is:

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Stjórnarskrá Íslands:

Lög nr. 33/1944 – 65.gr:

Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Er ekki eitthvað bogið við framsögu þessa steingerfings? Viljum við, í okkar samfélagi í dag, virkilega hafa slíkan einstakling í Ríkisstjórn? Í alvöru?

08

10 2009

Hver er að ljúga að hverjum?

Rakst á eftirfarandi – og þótti ansi áhugavert, sérstaklega í ljósi þess trausts sem fólk sýnir amk. tveimur af þessum stofnunum lýðveldisins. Þið dæmið – ég spyr svo spurninga hér í lokin.

Frétt #1 – RÚV:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #2 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #3 - DV.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Og svo…

Frétt #4 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Svo kemur mitt tuð…

Bara svo það sé á hreinu, þá líkar mér ekki svona aðferðir við að koma málstæð á framfæri. Fordæmi ég því þessa sýruárás, þótt svo ég styðji hina listrænu útrás, sem einhverjir eru að fá á sumum húsum borgarinnar. Það er tvennt ólíkt, dauðir eða lifandi hlutir.

EN – ég hef þessar spurningar:

  1. Hverjir eru heimildarmenn RÚV, DV og Vísi.is? Hvaða tilgang hafa þeir heimildarmenn að ljúga þessu að blaðamönnunum? Og hversu traustir teljast þeir núna – eða skiptir það kannski ekki svo miklu máli?
  2. Hvernig er hægt að “greina efnið“, þegar ekki var tekið sýni af því (sjá Frétt #4)
  3. Hver hefur hag af því að koma slíkum staðreyndavillum á framfæri – og í hvaða tilgangi?
    1. Blaðamennirnir?
    2. Útrásavíkingarnir?
    3. Útgefendurnir?
    4. Tryggingafélögin?
    5. Lögreglan?
  4. Hverju er um að kenna?
    1. Lélegum vinnubrögðum?
    2. Vísvitandi áróðri blaðamanna?
    3. Afritunarþjónustu blaðamanna af vef lögreglunnar?
    4. Skorti á sjálfstæðri hugsun?
    5. Vísvitandi áróðri Lögreglunnar?
    6. Vísvitandi lygum heimildarmanns?
  5. Hvernig er hægt að fullyrða að um “ætandi lakkeyði” sé að ræða, þegar
  6. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn”?
    1. Hvernig er þá hægt að fullyrða um að efnið “þótti of hættulegt” og
    2. [á] notkun þess eru takmarkanir samkvæmt Evrópusambandinu?
  7. Hvernig er hægt að hafa leynd á því efni sem notað var til fjölmiðlamanna, sem ekki var tekið sýni af – og þar af leiðandi ekki vitað hvaða efni var notað?

Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta mál allt saman…

07

10 2009

Vísir – Fjárlögin: Skatttekjur aukast um 63 milljarða

Hef ég heyrt þetta áður?

Jóhanna og Steingrímur - Mynd: Visir.is

Jóhanna og Steingrímur - Mynd: Visir.is

Hvað skattana varðar er reiknað með að skattar á einstaklinga hækki um 36,8 milljarða kr. Fari úr 106,7 milljörðum eins og þeir voru áætlaðir fyrir árið í ár og í 143,5 milljarða á næsta ári. Hinsvegar er gert ráð fyrir að skattar á lögaðila lækki um tæpan milljarð, eða úr 14,3 milljörðum og niður í 13,5 milljarða kr.

Leturbr. ÓS

af Vísir – Fjárlögin: Skatttekjur aukast um 63 milljarða.

visir

01

10 2009


Switch to our mobile site