wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘samstaða’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Æj, þegiðu Jónas!

Vísindalegar skoðanakannanir snúast um að búa til úrtak, er sé sem líkast heildinni, sem fjallað er um. Til þess eru notaðar ýmsar aðferðir. Hvergi er reiknað með, að menn velji sig sjálfir í úrtakið. Í þessum vísindalegu skoðanakönnunum er algengt, að svarhlutfall sé 80%. Við slíkar aðstæður vona menn, að niðurstaðan endurspegli heildina. Ef litið væri á atkvæðagreiðslu Eyjunnar um IceSave sem skoðanakönnun, er svarhlutfallið 4%. Það er að segja marklaust. Þegar fjölmiðlar segja útkomuna sigur fyrir andstæðinga IceSave, fara þeir með fleipur. 5188 atkvæði gegn IceSave eru harla fámennur hópur.

Lesa restina af þessari færslu →

18

12 2009

Hommar aflífaðir

Gay UgandaÉg hef aldrei komið til Afríku, ég á það eftir. En ég hef fengið að kynnast fólki frá þeirri heimsálfu, bæði á Íslandi og gegnum netið – og á góða vini og kunningja sem eru þaðan, eða eiga ættir sínar að rekja þangað. Yndislegt fólk, sem hefur gert mig ríkari bara fyrir það eitt að fá að kynnast því.

Afríka er heimsálfa sem vesturlönd hafa arðrænt í árhundruði – og er afskipt af meirihluta samfélagsins beggja vegna Atlantsála. Það er sorglegt, því þaðan eigum við öll að rekja uppruna okkar, ef út í það er farið; Adam og Eva heimsbyggðarinnar, voru frá sléttum Afríku, sem niðjar þeirra síðan ferðuðust um heimsbyggðina og uppfylltu jörðina.

Lesa restina af þessari færslu →

18

10 2009

Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Páll Hreinsson - Mynd:Vísir.is

Jafnframt vill forseti upplýsa að á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokkanna hefur verið fjallað um hvernig standa á að þinglegri meðferð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Samstaða er um mikilvægi þess að sá farvegur verði markaður fyrir fram áður en skýrslan verður gerð opinber. Því má vænta þess að á næstu dögum verði lögð fram þingsályktunartillaga sem taki á þessu atriði. Sú tillaga mun ganga út frá því að skipuð verði sérstök þingmannanefnd sem falið verði að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

[Leturbreytingar - ÓS]

af Vísir – Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar.

Finnst mér einum vera eitthvað gruggugt hér í gangi?

14

10 2009

Opið bréf til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)
Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:
1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
2. Hvert er verðbréfasafn LV
3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
4. Hver er gjaldeyriseign LV
5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.
Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.
Ólafur Skorrdal
Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)

Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:

  1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
  2. Hvert er verðbréfasafn LV
  3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
  4. Hver er gjaldeyriseign LV
  5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.

Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.

Ólafur Skorrdal

Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

22

08 2009

Aftur hefðbundnar aðferðir – thorrialmennings.blog.is

Mynd: Þorri Almennings

»Saving Iceland virðist hafa horfið aftur til hefðbundinna og friðsamra aðgerða í anda borgarlegrar óhlýðni. Ekki er þetta hlekkjaða fólk öfundsvert, en veðrið virðist ágætt og þau komust að sem fyrsta fréttin í morgunfréttatíma RUV. Fólk er auðvitað búið að bíða eftir að þessari venju sé fylgt í allt sumar. Það verður ekki fyrir vonbrigðum og fær að hneykslast þótt langt sé liðið á sumar.«

via Aftur hefðbundnar aðferðir – thorrialmennings.blog.is.

12

08 2009

Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online

»He said Britain had provided financial assistance to Iran’s reformists to undermine the hardline clerical regime during June’s disputed presidential elections.

Hossein Rassam, a political analyst with the embassy, said a budget of £300,000 had been allocated by the embassy to establish contacts with political groups, individuals and activists.«

via Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online .

Ef í útlöndum – því ekki heima hjá sér? (Eða þá á Íslandi – ef um “íslenskar” löggur er um að ræða? Þeir læra ýmislegt misjafnt í “útlöndum” – því hef ég komist að síðustu árin…

10

08 2009

Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is – Lögruglubullur misþyrma konu

»Bloggplebbar reyna vafalust að snúa út úr þessu lögrguglu í hag þar sem lögruglan var fljót að senda út lygar til að hafvegaleiða til að láta heimskingjana hneykslast í sinni upphrópunarorðræðu. en nú beitir Lögruglan Jóni H. Baugsmáli  Snorrasyni. Svar hans einkennist af svo yfrrgegnilegum heimskuhroka að það  hálfa væri nóg. En kæru landar, viljið þið búa í svona ríki og lifa við svona ofbeldi yfirvalda?«

via Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is.

Hér tjáir sig enn einn nýr bloggvinur. Segir það sem segja þarf!

10

08 2009

„Stærsta gangan til þessa“ – mbl.is

Mynd: mbl.is

»„Hinsegin dagar hafa markað sér sess sem almenna mannréttindahátíð. Þetta byrjaði sem hátíð til að minna á réttindi samkynhneigðra, en öll mannréttindi tengjast og þar af leiðandi er mjög eðlilegt að hátíðin breytist í almenna mannréttindahátíð þar sem við fögnum því að mannréttindi eru virt og minnum jafnframt á að það eru til lönd þar sem þessi réttindi eru ekki til. Lönd þar sem samkynhneigt fólk er tekið af lífi af yfirvöldum ef þau komast að því að viðkomandi sé samkynhneigður. Þannig að það er mjög ánægjulegt að skulum geta verið hérna öll íslenska fjölskyldan saman á þessum degi og minnt á það hvað við eigum það gott,“  segir Heimir.«

via „Stærsta gangan til þessa“ – mbl.is.

Gleðilega hátið!

08

08 2009

Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd: mbl.is/Stefán

»Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina.«

via Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni.

Stórhættulegir glæpamenn, sem þarf að snúa niður, berja á með kylfum – og sýna hverjir hafa “valdið”!

08

08 2009

Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is

»Fyrir þessa aðgerð var fólki úr hópnum misþyrmt af lögreglu; 5 sviptir frelsinu og hnepptir í gæsluvarðhald. Lögreglumaður gekk ítrekað í skrokk á einni þeirra handteknu; tók  hana margsinnis hálstaki með þeim afleiðingum að hún átti erfitt með andardrátt, hrinti henni í jörðina og steig að lokum ofan á hana. Viðbrögð annarra sem voru á staðnum – tilraun til að stöðva lögregluofbeldið – kallaði fram fjölda kylfuhögga af hendi lögreglu.«

via Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is.

Segi ekkert – en trúi þeirra hlið málsins. Þekki of marga þarna of náið til að taka ekki mark á orðum þeirra.

08

08 2009


Switch to our mobile site