wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘mótmæli’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Hver er að ljúga að hverjum?

Rakst á eftirfarandi – og þótti ansi áhugavert, sérstaklega í ljósi þess trausts sem fólk sýnir amk. tveimur af þessum stofnunum lýðveldisins. Þið dæmið – ég spyr svo spurninga hér í lokin.

Frétt #1 – RÚV:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #2 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #3 - DV.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Og svo…

Frétt #4 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Svo kemur mitt tuð…

Bara svo það sé á hreinu, þá líkar mér ekki svona aðferðir við að koma málstæð á framfæri. Fordæmi ég því þessa sýruárás, þótt svo ég styðji hina listrænu útrás, sem einhverjir eru að fá á sumum húsum borgarinnar. Það er tvennt ólíkt, dauðir eða lifandi hlutir.

EN – ég hef þessar spurningar:

  1. Hverjir eru heimildarmenn RÚV, DV og Vísi.is? Hvaða tilgang hafa þeir heimildarmenn að ljúga þessu að blaðamönnunum? Og hversu traustir teljast þeir núna – eða skiptir það kannski ekki svo miklu máli?
  2. Hvernig er hægt að “greina efnið“, þegar ekki var tekið sýni af því (sjá Frétt #4)
  3. Hver hefur hag af því að koma slíkum staðreyndavillum á framfæri – og í hvaða tilgangi?
    1. Blaðamennirnir?
    2. Útrásavíkingarnir?
    3. Útgefendurnir?
    4. Tryggingafélögin?
    5. Lögreglan?
  4. Hverju er um að kenna?
    1. Lélegum vinnubrögðum?
    2. Vísvitandi áróðri blaðamanna?
    3. Afritunarþjónustu blaðamanna af vef lögreglunnar?
    4. Skorti á sjálfstæðri hugsun?
    5. Vísvitandi áróðri Lögreglunnar?
    6. Vísvitandi lygum heimildarmanns?
  5. Hvernig er hægt að fullyrða að um “ætandi lakkeyði” sé að ræða, þegar
  6. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn”?
    1. Hvernig er þá hægt að fullyrða um að efnið “þótti of hættulegt” og
    2. [á] notkun þess eru takmarkanir samkvæmt Evrópusambandinu?
  7. Hvernig er hægt að hafa leynd á því efni sem notað var til fjölmiðlamanna, sem ekki var tekið sýni af – og þar af leiðandi ekki vitað hvaða efni var notað?

Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta mál allt saman…

07

10 2009

Fésbókar-mótmæli!

Facebook-mótmæli - Mynd: Sævarinn

Facebook-mótmæli - Mynd: Sævarinn

20

08 2009

Aftur hefðbundnar aðferðir – thorrialmennings.blog.is

Mynd: Þorri Almennings

»Saving Iceland virðist hafa horfið aftur til hefðbundinna og friðsamra aðgerða í anda borgarlegrar óhlýðni. Ekki er þetta hlekkjaða fólk öfundsvert, en veðrið virðist ágætt og þau komust að sem fyrsta fréttin í morgunfréttatíma RUV. Fólk er auðvitað búið að bíða eftir að þessari venju sé fylgt í allt sumar. Það verður ekki fyrir vonbrigðum og fær að hneykslast þótt langt sé liðið á sumar.«

via Aftur hefðbundnar aðferðir – thorrialmennings.blog.is.

12

08 2009

Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online

»He said Britain had provided financial assistance to Iran’s reformists to undermine the hardline clerical regime during June’s disputed presidential elections.

Hossein Rassam, a political analyst with the embassy, said a budget of £300,000 had been allocated by the embassy to establish contacts with political groups, individuals and activists.«

via Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online .

Ef í útlöndum – því ekki heima hjá sér? (Eða þá á Íslandi – ef um “íslenskar” löggur er um að ræða? Þeir læra ýmislegt misjafnt í “útlöndum” – því hef ég komist að síðustu árin…

10

08 2009

Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is – Lögruglubullur misþyrma konu

»Bloggplebbar reyna vafalust að snúa út úr þessu lögrguglu í hag þar sem lögruglan var fljót að senda út lygar til að hafvegaleiða til að láta heimskingjana hneykslast í sinni upphrópunarorðræðu. en nú beitir Lögruglan Jóni H. Baugsmáli  Snorrasyni. Svar hans einkennist af svo yfrrgegnilegum heimskuhroka að það  hálfa væri nóg. En kæru landar, viljið þið búa í svona ríki og lifa við svona ofbeldi yfirvalda?«

via Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is.

Hér tjáir sig enn einn nýr bloggvinur. Segir það sem segja þarf!

10

08 2009

Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd: mbl.is/Stefán

»Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina.«

via Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni.

Stórhættulegir glæpamenn, sem þarf að snúa niður, berja á með kylfum – og sýna hverjir hafa “valdið”!

08

08 2009

Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is

»Fyrir þessa aðgerð var fólki úr hópnum misþyrmt af lögreglu; 5 sviptir frelsinu og hnepptir í gæsluvarðhald. Lögreglumaður gekk ítrekað í skrokk á einni þeirra handteknu; tók  hana margsinnis hálstaki með þeim afleiðingum að hún átti erfitt með andardrátt, hrinti henni í jörðina og steig að lokum ofan á hana. Viðbrögð annarra sem voru á staðnum – tilraun til að stöðva lögregluofbeldið – kallaði fram fjölda kylfuhögga af hendi lögreglu.«

via Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is.

Segi ekkert – en trúi þeirra hlið málsins. Þekki of marga þarna of náið til að taka ekki mark á orðum þeirra.

08

08 2009

www.jonas.is – Ómar lét lögguna plata sig

»Ómar Ragnarsson lét plata sig. Kvartar um, að andófsfólk hafi sparkað í höfuð löggu. Ég tel, að sá atburður hafi ekki gerzt. Né, að andófsfólk hafi sótt járnstengur til að lemja löggur. Andófsfólk hefur lagt fram myndskeið og myndir máli sínu til stuðnings. Slíkt hefur löggan ekki gert. Hún hefur oft áður verið staðin að lygi um framgöngu í andófi. Sem betur fer gefa myndsímar andófsfólki tækifæri til að andmæla lygum hennar. Þess vegna segi ég við Ómar í fullri vinsemd: Varaðu þig á orðum löggunnar. Og varaðu þig á fjölmiðli, sem lepur lygar löggunnar. Ég er þar að tala um ríkissjónvarpið.«

via www.jonas.is.

Svo voru mörg þau orð!

08

08 2009

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband



Switch to our mobile site