wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘hræðsluáróður’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Skamm! Þórarinn Tyrfingsson

„Góður mælikvarði á hvert stefnir í þessum málum eru ót[í]mabær dauðsföll hjá áfengis- og vímuefnafíklum sem hafa verið á Vogi. Auðvitað deyja fleiri úr áfengis- og vímuefnafíkn[] ótímabært en þeir sem í gagnagrunninn eru skrá[ð]ir. Þessi skráning tekur þó til svo margra að hún segir okkur ákveðið og marktækt hvert stefnir.” (Þórarinn Tyrfingsson, leiðari SÁÁ blaði 2010, 1.tbl)

Fjárlagagerð fyrir næsta ár stendur sem hæst yfir sumarið, svo hægt verði að leggja fjárlög fyrir Alþingi fyrir áramót. Þetta er heilmikil vinna og mikilvæg, svo stjórnmálamenn viti í hvað þeir ætla að eyða aurunum okkar á næsta ári – og hversu mörg strá þau geta sett á bak asnanna, áður en þeir sligast undan.

Líkt og lóan boðar vorkomuna – boða fréttir frá SÁÁ um hinar ýmsu hörmungar í vímuefnamálum, törn hjá þeim einstaklingum sem vinna að fjárlagagerð Alþingis. Lesa restina af þessari færslu →

07

06 2010

“nú á ég hvergi heima”

Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég hef margoft sungið tvíraddað í góðum félagsskap – hér á árum áður. Vissulega sorglegt kvæði, en segir í raun margt um hvernig mér er innanbrjóst þessa síðustu mánuði – og ár. Það er sárt til þess að vita, að ég “á hvergi heima” um þessar mundir – og hefur liðið þannig í mörg ár, þar sem ég hef verið landflótta að mestu vegna skoðanna minna.

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson

Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Lesa restina af þessari færslu →

22

10 2009

Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum


Nokkur umræða hefur orðið um svokallaða orkudrykki í ljósi þess að nýjar tegundir sem innihalda mikið koffín hafa nú numið land. Ástæðan fyrir þessu er breyting á reglum en nú eru ekki lengur nein takmörk á magni viðbætts koffíns í drykkjum eins og áður var.

af Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum.

Orkudrykkjanotkun hefur snaraukist og er svo komið að við höfum fleiri einstaklinga sem nota drykkina (koffein, ginseng og fleiri “orkuaukandi” efni) til að halda sér gangandi megnið úr deginum. Hafa þessir drykkir áhrif á tauga- og æðakerfi ásamt því að hjartað fær að vinna hressilega, aukinn blóðþrýsingur er einnig fylgifiskur orkudrykkja. Ef við skoðum mann sem drekkur nokkra svona drykki á dag í einhvern tíma, hvernig ætli hjarta- og æðakerfi hans sé orðið eftir mikla notkun? Hvenær lendir þessi einstaklingur á sjúkrahúsi vegna orkudrykkjanotkunnar? Engir skattar eru eyrnamerktir til heilbrigðismála svo vitað sé af þessum orkudrykkjum. Tel ég að þessir drykkir, ásamt tóbaksnotkun, eigi eftir að verða heilbrigðisvandamál þessarar aldar, því þrátt fyrir að þetta séu lögleg fíkniefni er langur vegur frá að þau séu skaðlaus.

úr Vímuefnanotkun á Ísland (ÓS – 2003)

14

10 2009

Hver er að ljúga að hverjum?

Rakst á eftirfarandi – og þótti ansi áhugavert, sérstaklega í ljósi þess trausts sem fólk sýnir amk. tveimur af þessum stofnunum lýðveldisins. Þið dæmið – ég spyr svo spurninga hér í lokin.

Frétt #1 – RÚV:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #2 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #3 - DV.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Og svo…

Frétt #4 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Svo kemur mitt tuð…

Bara svo það sé á hreinu, þá líkar mér ekki svona aðferðir við að koma málstæð á framfæri. Fordæmi ég því þessa sýruárás, þótt svo ég styðji hina listrænu útrás, sem einhverjir eru að fá á sumum húsum borgarinnar. Það er tvennt ólíkt, dauðir eða lifandi hlutir.

EN – ég hef þessar spurningar:

  1. Hverjir eru heimildarmenn RÚV, DV og Vísi.is? Hvaða tilgang hafa þeir heimildarmenn að ljúga þessu að blaðamönnunum? Og hversu traustir teljast þeir núna – eða skiptir það kannski ekki svo miklu máli?
  2. Hvernig er hægt að “greina efnið“, þegar ekki var tekið sýni af því (sjá Frétt #4)
  3. Hver hefur hag af því að koma slíkum staðreyndavillum á framfæri – og í hvaða tilgangi?
    1. Blaðamennirnir?
    2. Útrásavíkingarnir?
    3. Útgefendurnir?
    4. Tryggingafélögin?
    5. Lögreglan?
  4. Hverju er um að kenna?
    1. Lélegum vinnubrögðum?
    2. Vísvitandi áróðri blaðamanna?
    3. Afritunarþjónustu blaðamanna af vef lögreglunnar?
    4. Skorti á sjálfstæðri hugsun?
    5. Vísvitandi áróðri Lögreglunnar?
    6. Vísvitandi lygum heimildarmanns?
  5. Hvernig er hægt að fullyrða að um “ætandi lakkeyði” sé að ræða, þegar
  6. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn”?
    1. Hvernig er þá hægt að fullyrða um að efnið “þótti of hættulegt” og
    2. [á] notkun þess eru takmarkanir samkvæmt Evrópusambandinu?
  7. Hvernig er hægt að hafa leynd á því efni sem notað var til fjölmiðlamanna, sem ekki var tekið sýni af – og þar af leiðandi ekki vitað hvaða efni var notað?

Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta mál allt saman…

07

10 2009

Halldór: Skuldastaða heimilianna

Hefur þetta ekki verið svona frá stofnun lýðveldisins? Ég er ekki gamall en ég held að ekkert lýsi baráttu okkar samfélags, frá miðri síðustu öld til dagsins í dag, meira en þessi mynd Halldórs hjá Morgunblaðinu:

Skuldastaða heimilanna - Halldór 2009

Skuldastaða heimilanna - Halldór 2009

28

09 2009

Andstaða líka í Samfylkingu – mbl.is

»„Taugatitringur.“ ,,Mjög þungur róður.“ „Í raun hefur málið ekkert þokast áfram síðustu þrjár vikur.“ Þannig lýstu viðmælendur innan stjórnarflokkanna í gær því rafmagnaða ástandi sem uppi er vegna óvissunnar um afgreiðslu þingsins á ríkisábyrgðinni vegna Icesave-samkomulagsins. Bent er á að stærsta vandamálið sé að ríkisstjórnin er klofin í málinu. Jafnvel þótt hún kæmist með naumindum í gegnum þennan brimskafl, en án stuðnings Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra og nokkurra þingmanna Vg, yrði það prófsteinn á áframhaldandi samstarf flokkanna. Framundan sé mjög erfið glíma við annað vandaverk, ekki síst við risavaxinn niðurskurð ríkisútgjalda.«

via Andstaða líka í Samfylkingu – mbl.is.

Það er “andstaða” allsstaðar! Ef svo væri ekki, væri eitthvað mikið að!

12

08 2009

Er bólusetning örugg? – magnuss.blog.is

»Varað var við svínaflensu faraldri 1976.  Bólusetningarherferð var sett í gang í USA, sumir vilja meina að svína flensan gangi út á bólusetningarherferð og bólusetningu beri að varast.«

via Er bólusetning örugg? – magnuss.blog.is.

Nei; bólusettning er EKKI örugg! Reynslan sýnir, að bólusettningar á “flensu” hafa frekar drepið einstaklinga (Google: Donald Rumsfeld) en að hjálpa þeim. Því ætti þessi “plat”-flensa að vera öðruvísi? “Mótefnið” hefur ekki einu sinni verið prófað á fólki, áður en það var sent út um allar jarðir…

Og hverjir eru það, sem helst eru að deyja vegna þessarar flensu? “19-24ra ára gaml[ir]” einstaklingar, eru þeir sem falla vegna þessarar flensu? HALLÓ!?!?? Eru það ekki einstaklingar, sem eiga að hafa sem sterkasta ónæmiskerfið??? URG!

10

08 2009

www.jonas.is – Hættið að dekstra hrunmenn

»Tilgangslaust er að reyna að fá stjórnarandstöðuna til að samþykkja IceSave með fyrirvörum. Hún vill einfaldlega ekki IceSave. Enda var hún í stjórn, er IceSave hengingarólin var brugðin á sínum tíma. Sjálfstæðið og Framsókn eru núna ábyrgðarlausir flokkar, sem afneita fortíð sinni. Tímabært er að hætta að dekstra liðið, sem olli hruni Íslands. Stjórnarsinnar verða að koma sér saman um fáa fyrirvara og skýringar, sem jafngilda ekki falli samningsins. Mest reynir á Ögmund Jónasson að koma á sátt stjórnar og uppreisnarþingmanna Vinstri grænna. Verra er að fá hrunmenn Sjálfstæðis og Framsóknar til valda.«

via www.jonas.is.

Áróður getur verkað á tvo vegu…

10

08 2009

Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd: mbl.is/Stefán

»Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina.«

via Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni.

Stórhættulegir glæpamenn, sem þarf að snúa niður, berja á með kylfum – og sýna hverjir hafa “valdið”!

08

08 2009

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband



Switch to our mobile site