wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘davíð oddsson’

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Geðveikin heldur áfram

Nú má lesa á fréttavef Vísi.is, að Davíð Oddsson, geðsjúklingur og ellilífeyrisþegi – hrunkonungur og fyrrum skemmdarvargur samfélagsins – muni verða “ritstjóri” Morgunblaðsins.

Hann lagði mál Hönnu Maríu að jöfnu við Bermúdaskál Davíðs Oddssonar

Ef myndir af þessum manni eru skoðaðar (svo ekki sé talað um Bermúdaskál og önnur skemmdarverk þessa skíthæls gegnum árin), er alveg á hreinu, að þarna er verið að leggja grunnin að sjálfsmorði heils dagblaðs. Stundum eiga sumir erfitt með að þekkja sinn vitjunartíma.

Svo er “Haraldur Johannssen” skipaður í stöðu “viðskiptafréttastjóra”, en nafnið eitt, má bendla við fasistann “Harald Johannessen” yfirlögreglustjóra Ríkisins – svo þetta hefur, í mínum huga, FASISMA skrifað út um allt.

Skoðið bara myndirnar af þessu PAKKI! Og dæmið sjálf:

Davíð Oddsson (Mynd: DV)

Davíð Oddsson (Mynd: DV)

Haraldur Jóhannessen - Ristjóri (Mynd: DV)

Haraldur Jóhannessen - Ristjóri (Mynd: DV)

Haraldur Jóhannessen - Ríkislögreglustjóri (Mynd: DV)

Haraldur Jóhannessen - Ríkislögreglustjóri (Mynd: DV)

Ég hef lokað aðgangi mínum á Blog.is – og ég mun aldrei skoða vef MBL.is, eftir þessa yfirtöku fasista Íslands! Ef fólk sér ekki í gegnum þetta – þá er það ekki mér að kenna!

24

09 2009

DV.is – Sandkorn – Vinir að komast aftur til valda?

»Tveir menn gengu þá um götur miðborgarinnar, sem ekki höfðu sést þar lengi. Þeir voru léttir í bragði og glaðir í lund, og höguðu sér eins og þeir valdamenn sem þeir einu sinni voru. Einn vegfarandi orðaði það svo að þeir létu „eins og þeir ættu pleisið, eða myndu að minnsta kosti eignast það mjög fljótlega“. Þetta voru þeir vinirnir Davíð Oddsson og Kjartan Gunnarsson.«

via DV.is – Sandkorn – Vinir að komast aftur til valda?.

Bubbi kóngur – og hitt hirðfíflið! Hvar var annars Hannes “hólmfífl”? Ekki þess verðugur að fylgja “konungi” sínum eftir? Eflaust ekki…

12

08 2009

Bauð konungdóm yfir Íslandi – mbl.is

Mynd: mbl.is

»„Jón var ekki glöggskyggn maður þegar kom að pólitík sem sést best á því að hann gaf embættismönnum nasista undir fótinn með ýmsu móti, þrátt fyrir að hann væri sjálfur kvæntur konu af gyðingaættum. Vorið 1938 var Jón einn þriggja Íslendinga sem gengu á fund embættismanns í áróðursmálaráðuneyti Göbbels og buðu embættismanninum Friedrich Christian prins af Schaumburg-Lippe konungdóm yfir Íslandi.«

via Bauð konungdóm yfir Íslandi – mbl.is.

Það þarf greinilega ekki nema tvo til þrjá, til að  koma þjóð sinni í bobba. Ég hugsa alltaf til tveggja; Davíðs og Halldórs. Þeir komu okkur í bobba síðast 2002 – og hafa ekki enn skammast sín fyrir það, þótt svo flokkar þeirra hafa gert það, upp að vissu marki…

08

08 2009

Land til sölu – Spilling innifalin!

visir-oll_nordurlondin_nema_noregur_komin_i_kreppu-270209

Smellið til að stækka


Það er alveg með ólíkindum, að þegar öll önnur lönd í heiminum, sem eiga við efnahagsörðugleika að stríða, lækka sína “stýrivexti”, skuli Ísland vera eina landið sem hækkar þá – og það all verulega. Davíð, þessi sem neitaði að fara uns lög voru sett á setu hans í seðlabankastóli, lækkaði stýrivexti úr nærri 17% niður í 12% (mjög líklega til að þykjast vera að gera eitthvað merkilegt), en var skipað að hækka þá aftur upp í 18% (!), sem er með því hæsta sem þekkist í þessari veröld í dag.

Meira að segja frændur[i] okkar á norðurlöndum eru í óða önn að lækka sína stýrivexti, vegna minnkandi landsframleiðslu, en Ísland – sem oftast þykist vera sér á parti í öllu – hækkar sína stýrivexti.

Ég er ekki hagfræðingur – kann varla stærðfræði (!) – en, “samsæriskenningasmiðurinn” ég, þykir vera mikil skítalykt af þessu dæmi. Ég get ekki að því gert.

visir-david_ekki_fram_a_sudurlandi-270209

Smellið til að stækka


Davíð ætlar ekki í framboð á suðurlandi[ii], sem ég tel vera mjög eðlilegt; maðurinn býr í Reykjavík og hefur meira að segja verið borgarstjóri fyrir það byggðarlag í nokkur ár. Hvaða fífl leifa sér að bjóða svona lagað? Eru þetta bara heilalausir sauðir sem búa þarna fyrir austan? Og að bjóða þessum landnýðingi í framboð – með undirskrifalistum! Ég efast stórlega um gáfur slíkra einstaklinga, sem svona lagað gera. Eins og maðurinn sagði: Það er ekki allt í lagi heima hjá þessum aðilum.

visir-varad_vid_faedubotarefnum-270209

Smellið til að stækka


Slíkt má auðvitað sjá, á yfirlýsingum þeirra núverandi þingmanna, sem hafa ásakað ónefnda aðila um að byrla sér eitur, án þess að kæra slíkt til lögreglu eða leita nánari sannana[iii] hjá þar til gerðum sérfræðingum, heldur trúa frekar rassatroðandi smákellingum, sem troða þá fulla af vökva, til þess eins að hreinsa út óþvera og viðbjóð, sem fáir landsmanna vilja sjá eða vita um. Smjörklípur koma frá þessum mönnum, bæði úr æðri og óæðri endum; hæfileiki þeirra til blekkinga og lyga kemur fram bæði í ofan- og neðanbúks prumpi.

visir-embaettismenn_seu_innlendir-270209

Smellið til að stækka


Síðast, en ekki síst, eru alþingismenn enn og aftur að brjóta Stjórnarskrá – enda það plagg aðeins skeynipappír og skiptir þá engu máli. Þeir brutu þann pappír tvisvar á öryrkjum, án þess að nokkur þeirra sætti ábyrgð – tveir þeirra fóru með þjóð sína í stríð, þótt svo slíkir samningar væru bannaðir í því sama plaggi. Stjórnarskráin skiptir þetta fólk engu máli; lögin eru fyrir aðra að fara eftir og til að nýðast á – stjórnmálamenn geta gert það sem þeim hentar. Voru það ekki orð manna eins og Nixon?

Nú hefur fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar verið framselt til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, í gegnum einhvern norsara – og allir virðast ánægðir. Aldrei á lýðveldistímanum hefur verið framið eins mikið landráð og nú – og þessu fólki er okkur ætlað að treysta! Guð – svo sannarlega – blessi Ísland. Oft var þörf – nú er nauðsyn!

Tilvísanir:
  1. Öll Norðurlöndin, nema Noregur, komin í kreppu – Vísir.is []
  2. Davíð ekki fram á Suðurlandi – Vísir.is []
  3. Varað við fæðubótaefni – Vísir.is []

27

02 2009

Forsetinn og Foringinn

Forseti - komma 

Forseti komma

Nú hafa erkióvinirnir tekið höndum saman[i] við að troða því litla – örlitla – mannorði[ii] sem þjóð okkar hafði, gersamlega í svaðið. Þeir skiptast á að koma þjóð okkar illa með kjaftinum á sér[iii] , hvort sem það er viljandi eða óviljaverk. Að við skulum hafa þessa kóna í forsvari fyrir þjóðina, er með ólíkindum. Hvað er að íslendingum?

Bubbi Kóngur

Bubbi Kóngur

Alveg ótrúlegt að fylgjast með þessum tveimur erkióvinum sameinast í því að traðka á þeirrar þjóðar, sem hefur komið þeim á þann stall sem þeir halda sig á. Sorglegt að við skulum hafa mulið undir þessa landráðamenn – þá ætti að koma fyrir í klefum næstu 16 árin; þeir eru orðnir hinir mestu glæpamenn íslandssögunnar – hver ætlar að neita því?[iv]

Tilvísanir:
  1. Davíð hættir ekki – Eyjan.is []
  2. Forsetinn: Við borgum ekki – Eyjan.is []
  3. Forsetinn grefur undan mannorði landsins – Eyjan.is []
  4. Myndir fengnar af Eyjan.is []

11

02 2009

Er þetta ástæðan fyrir því að Davíð situr svona fast? – jonthorvardar.blog.is

Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 miljóna fjárdráttinn sé farinn að mala á fullu.

Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um þetta mál og

líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn.

Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem fyrirtæki í fasteignabransa -

koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.

Lúðvík er ekki sá eini sem fékk sk. “mútu lán” hjá L.Í, lán með helmings lægri vöxtum en gengur og gerist.

-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode – sem er líka verið að afskrifa

- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 miljarða en ásett verð vallarins eru 50 miljarða á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.

Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um 80 – 90% þingmanna eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan hátt.

Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.

Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra miljón af því á mánuði og mér skilst að KPMG hafi verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis og mágur Björgvins fengið þegar afskrifað nú þegar.

Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddson á nánast allan þingheim og er því sallarólegur.

þori þeir ekki að hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá að láta tætarana ganga.

Frá Er þetta ástæðan fyrir því að Davíð situr svona fast? – jonthorvardar.blog.is.

Þetta kæmi mér lítið á óvart – enda eru þetta allt saman lýðræðisræningjar í mínum huga. Og hafa verið lengi.

13

12 2008

Fréttirnar eru í blogginu – Jónas.is

Jónas er alveg frábær:

Bloggið er orðinn öflugur fréttamiðill. Bloggarar bera ummæli pólitíkusa saman við verk þeirra og fyrri ummæli. Þannig varð Davíð Oddsson uppvís að lygi, þegar hann þóttist hafa varað við hruni. Skýrslur Seðlabankans sýna annað. Myndskeið sýna, að pólitíkusar sögðu annað en þeir segjast hafa sagt. Þau sýna, að þeir segja sitt á hvað, sem hentar þeim hverju sinni. Guðni Ágústsson varð uppvís af að falsa ummæli sín í Alþingistíðindum. Bloggari kom upp um gistingu reykvískra þingmanna á hóteli í Reykjavík. Hefðbundnir fjölmiðlar hafa bilað á aðhaldsvaktinni og bloggarar hafa tekið upp þráðinn.

Fréttirnar eru í blogginuJónas.is

Sjálfstæðisflokknum stóð ógn af Netverjum, sem stóðu fyrir mótmælum á Austurvelli 1997 sem skiluðu árangri, og þess vegna var sendur af örkinni einstaklingur til að drepa niður þann félagsskap. Síðan þá hefur skipulega verið gert lítið úr mótmælum og mótmælendum – ekki nema von að Stjórnvöld komist upp með eins mikinn hroka og þau gera.

07

12 2008

Lýðræðisræningjar þingsins

Í nokkur ár hef ég reynt að koma skoðunum mínum á framfæri við stjórnmálamenn þessa lands, sent þeim eitt og annað í pósthólf þeirra, sérstaklega þegar mér finnst þeir vera að fara illa með lýðræðið. Hafa svör þeirra verið fátækleg mjög, stundum engin, en það sem ég hef mest tekið eftir er hversu sjálfmiðaðir og eigingjarnir stjórnmálamenn okkar eru.

Í fyrstu reyndi ég að skrifa þeim með rökum, koma á framfæri upplýsingum sem ég taldi – og tel enn – að þeir væru að fara á mis við; upplýsingum sem ég hef haft í fórum mínum lengi en þorði ekki að ræða um í fyrstu, af ótta við viðbrögð lögreglu og annarra yfirvalda. Þegar mér tókst ekki að vekja áhuga stjórnmálamanna með rökum, þar sem ég fékk lítil eða engin svör frá þeim, byrjaði ég að fylgjast meira með þeim vinnubrögðum sem þeir viðhafa á þingi – og senda þeim tóninn af og til.

Ég hef reynt að benda þeim á mannréttindi, reynt að sýna þeim hversu illa löggjafavaldið hefur farið með lýðræðið, sérstaklega þegar mér tókst ekki að afhenda mótmælalista til kjörinna fulltrúa okkar þjóðar, vegna þess að hver einasta hurð hjá Alþingi var læst – og mér ekki hleypt einu sinni inn á skrifstofur Alþingis, til að afhenda þennan lista. Þá fauk illilega í mig og ég snérist alfarið gegn þessum lýðræðisræningjum, sem þeir svo sannarlega eru. Að loka aðgangi mínum að lýðræðislega kjörnum fulltrúum, er að ræna mig lýðræðislegum rétti mínum – og stjórnarskrárbundnum – að geta átt bein samskipti við kjörna fulltrúa þessa lands. Og ég sagði þeim það, kallaði þá lýðræðisræningja, upp í opið geðið á þeim – og það má víst alls ekki…

Þegar ég skrifaði grein um síðustu áramót, þar sem ég sagði sögu 15 ára stúlku sem hafði verið nauðgað af lögreglu, sagði þessum alþingismönnum að nú væri nóg komið af ofsóknum lögreglunnar sjálfrar, hafði enginn alþingismaður áhyggjur af barninu, heldur mun meiri áhyggjur af því að ég nefndi nöfn þeirra í tengslum við notkun ólöglegra vímuefna. Þegar svo ég hitti einn alþingismann, til að segja honum frá þessum vinnubrögðum lögreglunnar, hafði hann enn meiri áhuga á skúbbi um Jónínu Ben og Málefnin, heldur en lýðræðisnauðgun lögreglu og ráðherra.

Í þessu samskiptum mínum af þingmönnum og stjórnvöldum yfir höfuð, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta eru allt lýðræðisræningjar, mismiklir hræsnarar og dónar. Það lýsir því best, að fyrrum forsætisráðherra, Davíð Oddsson, hló að þeim 52.000 ólesnu póstum sem hann átti í tölvu sinni; hló að lýðræðinu, því sem hann átti að vera að vinna fyrir. Lýsi ég frati á slíka menn, hvort sem þeir eru hættir eða ekki – þar sem ég veit með vissu að þeir neita að svara mér, neita að hitta mig og neita að hlusta á lýðræðið, því þeir þjóna því svo sannarlega ekki.

Í lýðræðisríki gætu kjörnir fulltrúar ekki komist upp með að sitja áfram, eftir að hafa fengið á sig dóm í Hæstarétti fyrir Stjórnarskrárbrot; hér, sitja þeir sem fastast og hlægja að þjóð sinni, sem í heimsku sinni halda að lýðræði merki að kjósa á fjögurra ára fresti. En það er ekki lýðræði; það er gerfilýðræði, þegar kjörnir fulltrúar brjóta lög og bera enga ábyrgð á því! Slík er í mínum huga fasistaríki; þar sem borgararnir eru fyrir fulltrúana, en ekki öfugt.

Hins vegar má eflaust kenna mér sjálfum um að fá ekki áheyrn hjá þessum fulltrúum; áheyrn sem ég á svo sannarlega rétt á að fá, samkvæmt stjórnsýslulögum. En þeir brjóta þau lög; þeim er alveg sama um lögin yfir höfuð. Lög sem þeir ætla okkur borgurunum að fara eftir, en eru sjálfir undanþegnir. Eiður sá sem þessir einstaklingar taka, þegar þeir komast á þing, er þeim einskins virði um leið og þeir sleppa síðasta orðinu; er kominn í gleymsku stjórnmálanna áður en punkturinn drýpur af vörum þeirra.

Nú er að renna upp kosningavetur, eitthvað sem allir stjórnmálamenn eru að undirbúa sig fyrir, með prófkjörum og lýðskrumi. Nú eigum við borgararnir að fá að vera í aðalhlutverki, því þessir ræningjar geta víst ekki sests á þing án okkar. Ég ætla mér að nýta þetta tækifæri út í eitt, sýna þeim að þeir eru að vinna fyrir þjóð sína, ekki einkavini og félaga. Þessir lýðskrumarar, sem nú sitja á Alþingi, munu ekki komst hjá því að hitta mig, ekki geta komist hjá því að hlusta á það sem ég hef að segja, því annars munu þeir sýna það fyrir fleirum en mér, að þeim er andskotans sama um þjóðina; andskotans sama um fólkið í landinu – eitthvað sem ég hef löngu komist að í minni baráttu. Þeir dæma mig glæpamann og dópista, án þess svo mikið sem að kynnast mér – ég dæmi þá lýðræðisræningja, af verkum þeirra og aðgerðarleysi!

22

09 2006

Handrukkarinn Jónína

Í nokkur ár hef ég fylgst vel með öllu því sem gerist í svokölluðum Undirheimum hér í landi. Þaðan koma oft ótrúlegar sögur af mönnum, sem fara sínu fram með hótunum og ofbeldi, stundum svo miklu að jafnvel fjölmiðlar komast í og gera mál úr. Oftast hóta þessir einstaklingar gegnum síma, öskra vel og nota ófögur orð í eyru þeirra sem þeir vilja hræða og hafa áhrif á. Hef ég orðið vitni að mörgum slíkum símtölum, bæði sem áhorfandi og sem hlustandi – en það eiga flestar þessar hótanir sameiginlegt að sá sem hótar notar sér bágt ástand viðkomandi, nýðist mest á veikleikum hans og hefur uppi hótanir í garð fjölskyldu viðkomandi. Oftar en ekki er þetta bara heitt loft; útbelgt ego notað til að hræða, ógna og fá sínu fram. Hingað til hafa þessar aðferðir verið kenndar við handrukkara – núna notar Jónína Benediktsdóttir þessar sömu aðferðir til að fá sínu fram.

Hver svo sem hefur í hótunum við einstakling gerir sér oftar en ekki grein fyrir því að sú aðferð, að hóta með ofbeldi, ærumeiðingum, atvinnumissi eða einhverju slíku, er gersamlega ólöglegt. Þess vegna fara þeir sem hóta oft varlega með orð sín, hóta undir rós og gera það jafnvel snyrtilega og kurteysislega. Má síðast nefna hótun Alcan við forsætisráðherra, en deilt er um hvort það sé í raun hótun eða ekki.

Að hóta einstaklingi atvinnumissi, fangelsi eða ærumissi ef ekki er eitthvað framkvæmt sem ofbeldismaðurinn vill, er það brot á almennum hegningalögum. Slíkar aðferðir sæma handrukkurum og veit ég til þess að hótanir hafi sent menn austur á Litla-Hraun í nokkra mánuði. Lögfræðingur Jónínu hafði ekkert að athuga við hótanir hennar, sagði þær vera í lagi og ekki lögbrot. Hvar ætli hann hafi lært lögfræði?

Nú hefur orðið trúnaðarbrestur vegna hótana Jónínu Ben, milli netverja og stjórnanda Málefnanna. Get ég, sem sannur Netverji, ekki annað en staðið á bak við Stefán, þann sem Jónína hótaði svo gróflega, vegna þess að ég veit hvaða mann hann hefur að geyma. Að nýðast á slíkum einstaklingi, líkt og Jónína gerði, sýnir hve langt hún er tilbúin að ganga til að ná sínu fram. Hún notar aðferðir sem þekkjast í Undirheimum borgarinnar, svo í mínum bókum er hún hreinn og klár glæpamaður. Handrukkari af verstu gerð, sem misnotar sér þunga frægðar sinnar til þess að fara um þetta samfélag með hótunum og yfirgangi.

Ég stend á bak við Stefán í þessu máli öllu saman, fordæmi aðferðir Jónínu – lögbrot hennar – til að nálgast þær upplýsingar sem hún hefur. Ég bið netverja alla að flykkja sér á bak við Stefán, sem ég veit að er niðurbrotinn maður vegna þessa máls, en allt vegna hroka og yfirgangs – lögbrots – Jónínu Benediktsdóttur. Nú þurfum við að standa saman gegn ofbeldi af þessu tagi – gegn hótunum einstaklings á borð við Jónínu Ben, sem heldur að hún geti fengið allt með yfirgangi og frekju.”

10

03 2006

1. apríl! – og allir eru plataðir

Það er auðvitað allt í lagi að plata í dag; það er fyrsti apríl. Stöð 2 plataði með að Bobby Fischer væri farinn að tefla aftur og ætlaði að tefla kl. 8 í Þjóðmenningarhúsinu. Auðvitað er það plat, líkt og demantshringurinn í páskaegginu frá Góu. Allt er þetta bara saklaust plat. En hvað með alvöru platið? Hvað með fréttastjórann sem kom í vinnuna í dag, bara svona í plati? Er svoleiðis plat bara í lagi? Eða hafði maðurinn ekki gert sér grein fyrir andúðinni sem hann myndi hljóta þegar hann mætti til vinnu? Ef einstaklingur, sem á að vera fréttastjóri, finnur ekki að hann getur ekki sinnt sinni vinnu áður en hann mætir til hennar, er hann þá hæfur til að vinna sem fréttastjóri? Spurning.

Lesa restina af þessari færslu →

01

04 2005


Switch to our mobile site