wordpress visitor counter

Gagnasafn ‘Lýðræði’Gagnasafn

Við krefjumst!

Það væri að bera í bakkafullan lækinn að skrifa eitthvað um Alþingi og það hörmungar leikrit sem þar hefur verið í gangi að undanförnu – svo ég ætla að sleppa því. Að mestu. Fólk er loks farið að sjá í gegnum falleg leiktjöldin og fatta að þeirra hagsmunir hafa í raun aldrei skipt neinu máli. Tók tíma en tókst að lokum.

Fyrst eilífðarleikritið við Austurvöll er ekki til umræðu er best að tala um áhorfendurna og þeirra viðbrögð, sem vissulega má finna á öllum skala mannlegrar upplifunar. Sumir harka við skjáinn og ausa úr skálum visku sinnar, nú eða reiði, gleði, hamingju eða viðbjóði, allt eftir því hvað er að gerast, hjá hverjum og hvenær – aðrir þramma um götur og mótmæla öllu engu og hinu líka. Samhljómur er með mörgum, stundum, oft eða alltaf – nú eða að nokkrir deila um allt og alla, við alla og enga.

Það hefur verið mér mikil upplifun að fylgjast með þessu og vera meira áhorfandi en þátttakandi, vegna þreytu og ákveðinni uppgjöf fyrir málefninu Íslenskt samfélag. Lengi vel reyndi ég að berjast við þær vindmyllur sem tröllríða stjórnkerfinu, en að lokum hætti ég þessari vitleysu eða missti alla heilsu ella. Svo þetta hefur verið mér dýrmæt og mikilvæg reynsla, að fá að sjá allskonar fólk gera allskonar hluti – og jafnvel ná árangri í því fatlaða lýðræði sem mér finnst vera á Íslandi. Í raun ætti lýðræðið að vera á gjörgæslu – en, því miður, þá ráða enn einstaklingar sem keyrðu allt í klessu og halda því fram að þau viti allt mun betur en sjúkraliðarnir.

Einu raunverulegu mótmælin sem hafa orðið, voru fyrir utan Alþingi og Seðlabankann í kring um áramótin 2008/2009. Svo var eins og fólk héldi að það væri búið að redda þessu, fór heim og setti ýsuna í pottinn – þeir sem höfðu efni á slíkum munaði. Markmiðinu var náð, að mati flestra. En því fer svo fjarri lagi, eins og fólk er að átta sig á núna, að það er engu lagi líkt.

Lítið sem ekkert hefur breyst, nema hvað búið er að bjarga flestum auðrónunum, fjármagnseigendum, fjármálastofnunum og bílalánaglæpastofnunum, á meðan heimilin í landinu blæða út. Yndisleg öfugmæli: “Norræn velferðarstjórn”. Búið er að skerða bætur öryrkja og aldraðra, hækka skatta á allt nema leiðindi – skera niður læknaþjónustuna svo mjög, að læknar hafa ekki orku til að skrifa vottorð lengur; það er ekkert eftir nema að skera niður heitavatnskostnað í sundlaugarnar, svo búið sé að taka af fólki nokkra von um þægindi eða skemmtun.

Það er kominn tími til að hætta að mótmæla. Það skilar engu og hefur á sér mjög neikvæðan stympil. Við, Íslendingar, eigum að taka upp gamla siði og fara í kröfugöngur; fylkja liði, öll sem eitt og KREFJAST ÚRBÓTA Á OKKAR MÁLUM.

  • Við KREFJUMST þess að húsnæðismálum verði komið í lag og óréttlæti fjármálakrimmanna verði gefið til baka
  • Við KREFJUMST þess að ólögleg gengislán verðu endurreiknuð og tekið tillit til þess áhlaups sem fjármálastofnanir gerðu á gjaldmiðilinn okkar, til að skara eld að eigin köku
  • Við KREFJUMST þess að sett verði ný Stjórnarskrá, kosið um hvern lið og ekki hætt fyrr en verkinu er lokið
  • Við KREFJUMST þess að fiskveiðistefnunni verði breytt
  • Við KREFJUMST þess að tryggt verði að auðlyndir þjóðarinnar verði ávallt í eigu þjóðarinnar
  • Við KREFJUMST þess að samin verði ný kosningalög, sem heimili persónukjör
  • Við KREFJUMST þess að þeir verði dregnir til ábyrgðar sem hönnuðu og ullu hruninu
  • Við KREFJUMST þess að farið verði í hreinsun á innviðum stjórnkerfisins
  • Við KREFJUMST þess að stjórnmálamenn fari að lögum – og eitt skuli yfir alla ganga
  • Við KREFJUMST þess að flóttamenn og aðfluttir fái mannsæmandi meðferð í kerfinu
  • Við KREFJUMST þess að Alþingi sýni þjóð sinni – vinnuveitanda – virðingu
  • Við KREFJUMST þrískiptingu valds
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á fjármálafyrirtækjum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á tryggingarfélögum
  • Við KREFJUMST betra eftirlits á olífélögunum
  • Við KREFJUMST betri neytendaverndar
  • Við KREFJUMST betri mannréttinda
  • Við KREFJUMST – Við KREFJUMST – VIÐ KREFJUMST!

Hættum þessu bölvaða rugli og förum að krefja þessa stjórnmálamenn um að sinna sinni vinnu og standa sig gagnvart þjóðinni. Mótmælum engu – KREFJUMST ÞESS!

22

09 2010

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Leiðinleg pólitík

Ég held þeir geri þetta allt með ráðnum huga – stjórnmálamennirnir okkar. Rífast eins og hundar og kettir þegar myndavélar og hljóðnemar eru nærri – en kjassast svo hver utan í öðrum í setustofum þings eða borgarstjórnar; hlægja að heimsku okkar kjósenda, að trúa þeim orðum sem frá vörum þeirra hrýtur. Síðan láta þeir okkur sjálf um að rífast, vera ósátt og skipast í lið, svo þeir geti haldið áfram að arðræna okkur – og það á okkar kostnað.

Pólitíkin á Íslandi er leiðinleg – pólitíkin á Íslandi er ekki pólitík, heldur hagsmunagæsla.

19

01 2010

Hjákátleg hundalógík

Pappalögga í Baunalandi

Margir halda að ég hati lögguna – ég geri það ekki; ég hata bara heimskar fasistalöggur, sem halda að þeir séu í þessu starfi til að kúga almenning og viðhalda þeirri kúgun, sem stjórnmálamenn troða ofan í kok á okkur. Svoleiðis pappalöggur eru ekki einu sinni skeinipappír í mínum huga, heldur jafn ómerkilegar og hverskonar nýðingar í okkar samfélagi. Og þær löggur – og þær eru til, skal ég segja ykkur – sem nýðast á unglingum í krafti valds síns, eru hinir verstu barnanýðingar í mínum huga. Svo ætlast þessir dindlar að þeim sé sýnd virðing! Þeir sem misbeita valdi sínu á ungu fólki, eins og ég hef orðið vitni að, ættu að fá að upplifa eigin viðbjóð – eða kannski bara fjölskyldur þeirra? Kannski þeir áttuðu sig þá á því, hvað nauðgun þeirra er að gera fyrir unga fólkið okkar og framtíð þeirra.

Lesa restina af þessari færslu →

22

12 2009

Æj, þegiðu Jónas!

Vísindalegar skoðanakannanir snúast um að búa til úrtak, er sé sem líkast heildinni, sem fjallað er um. Til þess eru notaðar ýmsar aðferðir. Hvergi er reiknað með, að menn velji sig sjálfir í úrtakið. Í þessum vísindalegu skoðanakönnunum er algengt, að svarhlutfall sé 80%. Við slíkar aðstæður vona menn, að niðurstaðan endurspegli heildina. Ef litið væri á atkvæðagreiðslu Eyjunnar um IceSave sem skoðanakönnun, er svarhlutfallið 4%. Það er að segja marklaust. Þegar fjölmiðlar segja útkomuna sigur fyrir andstæðinga IceSave, fara þeir með fleipur. 5188 atkvæði gegn IceSave eru harla fámennur hópur.

Lesa restina af þessari færslu →

18

12 2009

Hef enga trú á framtíðinni

Rúmu ári eftir að allt hrundi í okkar samfélagi, má enn finna einstaklinga sem þykja “pabbar” þeirra vera sterkari en “pabbar” allra hinna. Þessi árátta er ekki bundin við einn flokk, eða eina hugsjón, heldur virðist þetta vera bundið í trúarkerfi hvers og eins okkar, burt séð frá staðreyndum og “sannleikanum”.

Lesa restina af þessari færslu →

05

12 2009

Til framtíðar

Engin veit framtíð sína, hvort sem það eru spámenn fortíðarinnar eða sjáendur nútímans. Nostradamus má túlka á hvern þann veg, sem þjónar tilgangi þess er túlkar hann – rétt eins og hægt er að túlka spádóma “Jóhannesar” í Opinberunarbókinni. Sjáendur fortíðarinnar eru engu betri í því að sjá framtíðina, frekar en við sjálf – hvert og eitt okkar.

Lesa restina af þessari færslu →

14

11 2009

Opið bréf til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)
Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:
1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
2. Hvert er verðbréfasafn LV
3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
4. Hver er gjaldeyriseign LV
5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.
Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.
Ólafur Skorrdal
Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)

Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:

  1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
  2. Hvert er verðbréfasafn LV
  3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
  4. Hver er gjaldeyriseign LV
  5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.

Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.

Ólafur Skorrdal

Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

22

08 2009

Fésbókar-mótmæli!

Facebook-mótmæli - Mynd: Sævarinn

Facebook-mótmæli - Mynd: Sævarinn

20

08 2009

DV.is – Frétt – Bæjarstjóri í aðstöðubraski

»Haraldur og fjölskylda hans hafa í tvígang hagnast á sama landskikanum í Mosfellsbæ. Í fyrra skiptið keypti Mosfellsbær land Hulduhóla í Mosfellsbæ af fjölskyldu bæjarstjórans. Fjölskyldan leigði aftur hluta þess til 75 ára fyrir lítinn pening og seldi byggingarrétt í leigulandinu fyrir um 90 milljónir króna árið 2005. Bæjaryfirvöld innheimtu loks nærri 40 milljónir króna til viðbótar fyrir bygginarréttinn af byggingarverktaka. Verktakanum þótti sem hann hefði tvíborgað fyrir byggingarréttinn en fékk engar skýringar. Alls hafði hann þá greitt 234 milljónir króna fyrir byggingarrétt og gatnagerðargjöld í leigulandi bæjarstjórans eða um 21 milljón króna fyrir hverja lóð. Hann var óviðbúinn aukakostnaðinum og varð gjaldþrota.«

via DV.is – Frétt – Bæjarstjóri í aðstöðubraski.

Sukk og svínarí! Eða hvað? Er þetta bara eðlilegt? Af “lýðræðislega kjörnum einstaklingi”? Það finnst mér ekki…

12

08 2009

RÚV – Ísland er ekki of lítið

Mynd: Rúv.is

»Smæðinni fylgi bæði kostir og gallar, kostirnir vegi stundum á móti göllunum og vel það. Rétt sé athugað hjá Sibert að kostnaður við að halda úti almannaþjónustu verði meiri á hvern íbúa heldur en í fjölmennari löndum.

Þorvaldur segir smæðina sem slíka ekki hafa staðið Íslandi fyrir þrifum en okkur hafi hins vegar ekki haldist nógu vel á smæðinni. „Hér er spilling sem eiginlega umlykur allt samfélagið, bankana, viðskiptalífið, stjórnmálalífið. En hún er ekki skilgetið afkvæmi smæðarinnar. Smálönd geta alveg jafn vel valdið því verki að koma sér upp aðhaldi og eftirliti sem heldur aftur af of nánum tengslum viðskipta og stjórnmála.”«

via RÚV – Ísland er ekki of lítið.

Smátt, smærra, smæst… Hverju höfum við í raun áorkað án annarra?

10

08 2009


Switch to our mobile site